Tesla Motors rafbílaframleiðandinn hefur opinberað Tesla Model S rafbílinn. Gísli Gíslason frá Tesla umboðinu á Íslandi var viðstaddur frumsýninguna. Mikill fjöldi blaðamanna var á staðnum frá öllum heimshornum enda hefur bílsins verið beðið með óþreyju.
Þytur Rafbílaumboð hefur tilkynnt að fyrsti seldi Tesla Roadesterinn sem afgreiddur verður til Evrópu komi til Íslands. Er þetta sérstakur sýningarbíll sem hefur verið til sýnis hjá Brabus fyrirtækinu. Brabus er eitt af þekktari breytinga fyrirtæki í heiminum og er einna þekktast fyrir breytingar á Mercedes Benz bílum.