Tesla Motor Roaster Sport er einn þekktasti rafbílinn í dag. Með tilkomu nýrrar tækni hefur Tesla Motors náð eftirsóttu forskoti. Hægt er að fá bílinn í mismunandi útfærslum og ýmsa hluti sérsmíðaða. Það tekur aðeins 3,9 sek að ná 100km, og nær bíllinn milli 400-500 km á fullri hleðslu. Þetta er dæmigerður 100% rafbíll með 0% útblástursmengun. Tesla notar Lithium ion rafhlöður með 5 ára ábyrgð og endast þær að lámarki 160.000 km.

 

 

Rafmótorinn er með nánast algerlega flata togkúrfu sem þýðir það að hann gefur fulla vinnslu nánast um leið og hann byrjar að snúast.

 

Hámarksvinnslan er við 14 þúsund snúninga.

 

 

Gírkassinn er einfaldur, einungis einn gír fram og einn gír afturábak.

Í nýju útgáfunni hefur gírhlutfalli þessa eina gírs verið breytt úr 7,4:1 í 8,27:1, þá hefur þyngd gírkassans verið minnkuð um heil sjö kíló og er sá nýi um  45 kíló.

 


Tesla Motors hefur þróað tækni sem gerir þá einna fremsta í flokki rafbíla framleiðenda

 


Tesla Motors byrjar almenna afhendingu á Roadster Sport til Evrópu í júlí 2009 en fyrsta Evrópu eintakið verður afhent hér á landi fyrstu viku júlí.

 

Tesla Motors á Íslandi - Bankastrćti 5, 3. hćđ - 101 Reykjavík - s. 490 9000 - tesla@teslamotors.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is